Færsluflokkur: Bloggar

Kreppulok

Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn telur að „tæknilega séð“ er kreppunni lokið á Íslandi. Er ekki tilvalið að halda þá svokölluð "kreppulokahátíð" ??

Góðar ánægjustundir

 


Brúðkaupsveisla sumarsins!

Fallegt og skemmtilegt brúðkaupið ykkar Dagný og Steindór. Þið eruð dásamlega falleg hjón InLove 


Yndislegur vinur :)

Fyrir um 2 mánuðum varð mér á í traffíkinni og keyrði lauslega aftan á dráttarkúlu á mjög stóran bíl en ekkert skemmdist nema númeraplatan mín, hún beyglaðist og gekk inn eftir kúluna á hinum bílnum og ramminn smelltist upp, varð orðin mjög ljót á fallega bílnum mínum Crying  Platan hefur hangið í rammanum beygluð og ljót síðan.  ...En í gær tek ég eftir því að búið er að laga plötuna hún er orðin slétt og falleg aftur nánast eins og ný!  Hver er svona góður og elskulegur að laga þetta án þess að segja mér frá ???

Lífið er yndislegt og væri einskis án þín góði vinur.  Takk fyrir og þúsund kossar Grin


Skrípaleikur!

Er hægt að hunsa dóma Hæstaréttar á Íslandi í dag og óska eftir að málið verði tekið aftur fyrir og segja jafnframt ,,ég vil sjá hagstæðari niðurstöðu næst" ???  Hvað fær Gylfi Magnússon til að halda að hann getir pantað dómsúrskurð frá Hæstarétti? Gylfi er lektor við Háskólann en ekki lögfræðingur, að vera lektor þýðir að hann er kennari við Háskóla Íslands -ekkert annað!

 Góðar stundir Halo


Endurreisn atvinnulífsins á Íslandi -já takk!

Nú er liðinn 21 mánuður frá hruni. Enn bíður atvinnulífið eftir bönkunum og bankarnir bíða eftir ákvörðun frá ríkistjórn.  Þessu verður ríkistjórnin að fara að sinna af miklum myndarskap til að stöðva landflótta og glæða hér atvinnulífið aftur til farsældar fyrir alla í landinu.

Eigðu sólríkan dag 


Skundum á Þingvöll og ...

Nei nei fór ekki til að strengja nein heit á Þingvöllum í dag en við Rocco fengum okkur bíltúr þangað og gengum góðan hring í dásamlegu veðri. Komum svo við í þjónustumiðstöðinni og ég keypti ís handa okkur. Það er gaman að sjá hvað margir eru farnir að leggja leið sína þangað í útilegu enda er aðstaða öll til fyrirmynda. Það er brilliant að taka með sér hjólið einhverntíman og hjóla þarna í allar áttir eða kannski hjóla frá Þingvöllum á fallegum sumardegi og niður í Mosfellsdalinn  ..það eru ekki svo margir kílómetrar  Smile

Borgarstjóri vors og blóma

Ekki dónalegt fyrir Jón Gunnar að skola niður ugganum af maríulaxinum með góðu koníaki  


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband